Frá og með 2. janúar verður hægt að ferðast um Suðurland með strætó, allt frá Reykjavík og austur á Höfn í Hornafirði. Þetta er liður í stórfelldri stækkun þjónustusvæðis Strætó bs. í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Eitt samtengt leiðakerfi verður allt frá Höfn í Hornafirði og til Reykjavíkur, um uppsveitir Árnessýslu, niður í Þorlákshöfn og Landeyjahöfn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Strætó bs.