Það á ekki af karlaliði ÍBV að ganga í upphafi Íslandsmótsins. Fyrir mótið voru þrír af sterkustu leikmönnum liðsins meiddir, þeir Tryggvi Guðmundsson, Andri Ólafsson og Gunnar Már Guðmundsson. Þórarinn Ingi Valdimarsson bættist í þann hóp eftir Blikaleikinn og svo Guðmundur Þórarinsson eftir leikinn gegn KR. Og nú er óvíst hvort Tonny Mawejje geti leikið með ÍBV í næsta leik eftir að hafa meiðst í leiknum gegn Fylki í gær.