Sigurmundur Gísli Einarsson, eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Viking Tours, er búinn að kaupa nýjan bát og stefnir á að sigla í Landeyjahöfn næsta vetur. „Ég er búinn að fá leyfi hjá Siglingastofnun fyrir siglinum í Landeyjahöfn næsta vetur og er búinn að kaupa bátinn. Ég þarf bara að sækja hann og láta breyta honum til að uppfylla ákveðin skilyrði,“ sagði Sigurmundur í samtali við Eyjafréttir í dag.