Nýjasta viðbótin við skipaflota Vestmannaeyja, Víkingur kom til heimahafnar í morgun. Báturinn, sem áður hét Ísafold var smíðað í Svíþjóð 1971 en hefur undanfarið verið notaður fyrir sjóstangveiði og gerður út frá Reykjavík. Víkingur er 30 metra langur og 7 metra breiður og getur flutt 94 farþega og ristir 2,6 metra. Sigurmundur Gísli Einarsson, eigandi bátsins ráðgerir að sigla honum til Landeyjahafnar eftir endurbætur sem þarf að klára áður en haffærisskírteini verður gefið út á bátinn.