Hermann hættur
Hermann Hreiðarsson er hættur sem þjálfari knattspyrnuliðs ÍBV. Hermann tók við liðinu síðastliðið vor en í tilkynningu sem birt er á heimasíðu ÍBV-íþróttafélags kemur fram að ástæður uppsagnar Hermanns séu persónulegar. Undir stjórn Hermanns komst ÍBV í 2. umferð Evrópukeppninnar og endaði í 6. sæti deildarinnar. �?á kom Hermann sjálfur fimm sinnum við sögu í leikjum liðsins og ekki má gleyma því að aðsókn á heimaleiki ÍBV margfaldaðist í sumar.
Yfirlýsing ÍBV er svohljóðandi:
Hermann Hreiðarsson lætur af störfum
Hermann Hreiðarsson hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu af persónulegum ástæðum.
Hermann tók við ÍBV fyrir ári síðan, skilaði liðinu í 6. sæti deildarinnar og komst í 2. umferð Evrópukeppninnar.
Knattspyrnudeild ÍBV þakkar Hermanni fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
F.h. knattspyrnudeildar ÍBV
Valur Smári Heimisson, framkvæmdastjóri.

Nýjustu fréttir

Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.