Framlög ríkis til málefna fatlaðra ekki eins og samið var um
Á fundi bæjarráðs í vikunni, lá frammi greinargerð frá framkvæmdastjória fjölskyldu- og fræðslsviðs. Fram kemur í greinargerðinni að málaflokkur fatlaðs fólk stefnir í mikla yfirkeyrslu í ár og ljóst að rekstur hans á næsta ári er í uppnámi. Skýringin er sú að framlög ríkisins til málaflokksins eru ekki samkvæmt því sem samið hafði verið um og Vestmannaeyjabær unnið útfrá við ákvarðanir um gæðaaukningu svo sem vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar.
Bæjarráð lítur á málefni fatlaðra sem einn af mikilvægustu málaflokkum sveitarfélagsins. �?ví er lögð rík áhersla á að boðleiðir milli ríkis og sveitarfélags séu skýrar og vinnulag ríkisins á þann máta að sveitarfélagið geti rækt sitt hlutverk í málaflokknum á þann máta að fatlaðir njóti góðs af. Bæjarráð felur framkvæmdastjóra að fá skýr svör frá velferðarráðuneyti og Jöfnunarsjóði hvað framlög þess árs og næsta varðar. Í kjölfarið verður að sníða þjónustuna að þeim framlögum sem til málaflokksins eru lögð.

Nýjustu fréttir

Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.