Brugðist við óskum
Í kjölfar netkönnunar um vetraráætlun Herjólfs dagana 11. til 14. október sl. hefur verið ákveðið að breyta áætl­uninni í samræmi við niðurstöður ­könnunarinnar. Ferð­um verður fjölg­að á föstudögum og sunnudögum en á móti verður ferðum fækkað á þriðju­dögum og miðvikudögum. Frá og með föstudeginum 25. október verða því fimm ferðir föstudaga og sunnudaga en þrjár þriðjudaga og miðvikudaga. �?átttaka í könnuninni var mjög góð að mati Eimskips sem rekur skipið sam­kvæmt samningi við Vegagerðina.
Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs, segir að góð þátttaka hafi komið skemmtilega á óvart. �??Könn­unin var gerð á netinu, aðeins auglýst á vefsíðu okkar og á Facebook síðu Herjólfs og var aðeins opin fimm daga. Alls tóku 886 þátt í könnuninni og af þeim vilja 89,1% breyta áætlun­inni sem er í samræmi við það sem við höfðum heyrt hjá fólki,�?? sagði Gunn­laugur.
�??Reyndin er að fæstir ferðast með Herjólfi þriðjudaga og miðvikudaga en flestir föstudaga og sunnudaga. �?að var vilji mikils meirihluta þeirra sem tóku þátt í könnuninni að flytja kvöldferðir í miðri viku yfir á miðdagsferðir á föstudögum og sunnudögum. �??
Könnunin var gerð í samráði við Vega­gerðina og Vestmannaeyjabæ sem hafa samþykkt breytinguna. �??Við verðum að vinna innan þess ramma sem okkur er settur hvað ferðafjölda varðar. Við erum gríðarlega ánægð með þátttökuna og niðurstöðuna. �?að er líka gaman að geta brugðist við óskum fólks með þessum hætti.�??
Gunnlaugur vill vekja athygli á að Strætó ekur þrjár ferðir á dag til Landeyjahafnar alla daga vikunnar. �??Sú áætlun gengur alveg saman við þessa nýju áætlun okkar.�??
Hann segir að fullt af öðrum góðum ábendingum hafi komið fram í könn­uninni. �??Meðal annars um bætta að­stöðu fyrir gæludýr sem við erum þegar farin að vinna að. Einnig voru óskir um aukaferðir í kringum tónleika og aðra stærri viðburði sem freista fólks. Reynslan af þessari könnun ­hvetur okkur til að leita aftur til fólks í framtíðinni.�??
Heilt yfir segir Gunnlaugur að sigl­ingar hafi gengið vel í Landeyjahöfn frá því þær hófust 19. mars í vor. �??Við höfum siglt eina ferð eða fleiri í 208 daga síðan þá sem eru fleiri dagar en á sama tímabili 2012. Í fyrra sigldi Herjólfur til 24. nóvember en þann dag lentum við í óhappi í Landeyja­höfn. �?á tók Baldur við og sigldi til 9. desember þegar Herjólfur kom úr viðgerð. �?g er bjartsýnn á haustið og kannski átt þú eftir að spyrja mig um miðjan janúar; -Hvað lengi heldur þú að Landeyjahöfn verði opin?,�?? sagði Gunnlaugur.
�??�?að er ýmislegt sem bendir til þess að við getum nýtt Landeyjahöfn lengur en verið hefur undanfarin ár. Sandburður hefur verið að minnka ár frá ári eins og gert var ráð fyrir í upphafi sem er ánægjulegt. Einnig hefur tilkoma straummælisins í Landeyjahöfn hjálp­að skipstjórum við ákvarðanatökuna hvað siglingar varðar. Auðvitað er það hundfúlt fyrir alla þegar ferðir falla niður sérstaklega ef það gerist heilan dag. Ekki síst yfir hásumarið en ég held að mjög fáir vilji fara í gömlu áætlunina sem við vorum í áður en Landeyjahöfn kom til sögunnar.�??

Nýjustu fréttir

Eyjakonur töpuðu heima gegn Breiðablik
Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta
Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.