Hvort það hafi verið sú staðreynd að ÍBV spilaði í nýja salnum, eða eitthvað annað, þá er fyrsti heimasigurinn í höfn hjá karlaliði ÍBV í Olísdeildinni. Eyjamenn tóku á móti Íslandsmeisturum Fram í dag en eftir að hafa tapað fyrstu tveimur heimaleikjunum í gamla salnum, var ákveðið að prófa að spila í nýja salnum þar sem aðstaða fyrir áhorfendur er mun betri. �?etta lukkaðist svona ljómandi vel, stemmningin á pöllunum var stórgóð og fyrsti heimasigurinn staðreynd 30:25. Með sigrinum komst ÍBV upp að hlið Hauka og ÍR en þessi þrjú lið eru í efstu þremur sætunum í Olísdeildinni. Samkvæmt reglum HSÍ gildir hins vegar innbyrðis viðureignir fyrst, ekki markahlutfall og því eru Haukar á toppnum enda unnu þeir ÍBV í Eyjum í 2. umferð deildarinnar. ÍBV hafði hins vegar betur gegn ÍR og er því í öðru sæti. Eyjamenn eru hins vegar með besta markahlutfallið af þessum þremur liðum, eru með 22 mörk í plús en Haukar 21.
Um leikinn er það að segja að Eyjamenn fóru mjög illa af stað, leikmenn virkuðu stressaðir og lítið gekk, bæði í vörn og sókn. Ekki bætti úr skák að besti varnarmaður liðsins, Sindri Haraldsson fékk að líta rauða spjaldið strax á 12. mínútu fyrir, að því að virtist, fyrir frekar litlar sakir en það verður að segjast eins og er að dómaraparið, þeir �?orleifur Árni Björnsson og Jón Karl Björnsson hafa átt betri daga en í dag.
En upp frá rauða spjaldinu var eins og Eyjaliðið hafi losnað úr höftum taugaspennunnar. Leikmenn liðsins löguðu varnarleikinn og sóknarleikurinn fór að renna ljúflega í gegn. Andri Heimir Friðriksson og Theodór Sigurbjörnsson voru duglegir að hlaupa fram þegar ÍBV vann boltann í vörn og skoruðu ófá mörkin úr hraðaupphlaupum. Eftir að hafa lent þremur mörkum undir í fyrri hálfleik 9:12 en þá kom góður kafli hjá ÍBV þar sem þeir skoruðu fimm mörk í röð en á sama tíma skoruðu gestirnir ekki í níu sóknum í röð. Staðan í hálfleik var 15:13.
Eyjamenn héldu áfram á sömu braut í seinni hálfleik, skoruðu fyrstu þrjú mörkin og héldu svo áfram að bæta við forystuna. Mestur varð munurinn níu mörk en undir lokin slökuðu Eyjamenn á klónni og Framarar náðu aðeins að laga stöðuna. En eins og áður sagði, sannfærandi sigur og Eyjamenn ætla greinilega að blanda sér í toppbaráttuna í vetur.
Mörk ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson 6, Andri Heimir Friðriksson 6, Róbert Aron Hostert 5, Agnar Smári Jónsson 4, Grétar Eyþórsson 4, Guðni Ingvarsson 2, Matjaz Mlakar 2, Filip Scepanovic 1.
Varin skot: Kolbeinn Ingibjargarson 5, Haukur Jónsson 2.