Eyjafréttir leituðu eftir viðbrögðum þingmanna Suðurkjördæmis vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í samgöngumálum. Staðan hefur ekki verið verri um áratugaskeið, eftir að verkfall Sjómannasambands Íslands á Herjólfi hófst og var í raun og veru ekki á það bætandi. Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingunni og 6. þingmaður Suðurkjördæmis var fyrst til að svara fyrirspurn Eyjafrétta.
�??�?að er ljóst að verkfall starfsmanna á Herjólfi hefur í för með sér kostnaðarsamar aukaverkanir fyrir Eyjamenn og veldur miklum óþægindum. Deilan undirstrikar enn frekar hversu háðir Vestmannaeyingar eru tryggum samgöngum. �?g sem þingmaður kjördæmisins hvet aðila deilunnar til að tala saman, leita lausna og semja. �?ví fyrr sem deilan leysist því betra. Baráttan um betri samgöngur milli lands og Vestmannaeyja heldur áfram en réttur starfsmanna er að berjast fyrir betri kjörum, m.a. með því að beita verkfallsréttinum,�?? segir Oddný G. Harðardóttir.
Hér að neðan má lesa bréf sem ritstjórn Eyjafrétta sendi á alla tíu þingmenn kjördæmisins:
Kæri þingmannahópur Sunnlendinga
Eins og þið kannski vitið, er verkfall háseta, bátsmanna og þerna hafið um borð í Herjólfi. Verkfallið hefur nú staðið í tæpa viku og íbúar Vestmanneyja þegar farnir að finna illilega fyrir verkfallsaðgerðum, sem halda samfélaginu hér í heljargreipum. Skipið siglir nú aðeins eina ferð á virkum dögum, enga á laugardögum og sunnudögum. �?fært hefur verið í Landeyjahöfn undanfarið og verður fram í næstu viku. Verkfallið bitnar einkum á íbúum Vestmannaeyja, þeim sem síst mega við því, barnafjölskyldum og þeim sem þurfa að sækja læknisþjónustu til höfuðborgarinnar. Sem dæmi má nefna íþróttahópa sem annars færu í dagsferð um helgi, þurfa nú að fá frí tvo daga í skóla, gista í þrjár nætur með tilheyrandi aukakostnaði foreldra. Dæmi eru um að þeir sem þurfi að sækja læknisþjónustu, þurfi frí úr vinnu í þrjá daga. Við þetta má bæta raunverulegt tap fyrirtækja í bænum.
Eyjafréttir leita eftir viðbrögðum þingmanna kjördæmisins við þessari stöðu sem upp er komin og hvernig þú ætlar að beita þér fyrir því að samgöngumálum verði komið aftur í viðunandi horf. �?að bendir nefnilega allt til þess að deiluaðilar séu ekkert að nálgast í viðræðum, sem reyndar hafa ekki verið í gangi síðan í síðustu viku. Deiluaðilar hafa ekki séð ástæðu til að funda, svo mikið ber á milli. Er þá ekki komin rík ástæða fyrir hið opinbera að grípa inn í?
Júlíus G. Ingason
ritstjóri Eyjafrétta