Vorið er nánd, tjaldurinn er mættur og það er öruggur vorboði segir Jóhann Guðjónsson frá Gerði. Í gærdag fór Halldór Benedikt Halldórsson á bæjarrölt, fór um miðbæinn og virti fyrir sér fólk og framkvæmdir. Í vetur hefur verið unnið við að endurbyggja vesturhlutann af Vestmannabraut, sem einu sinni hét Breiðholtsbraut. Framkvæmdum við það verk er senn að ljúka. Nú eru unnið að gerð bílastæðis á horni Vestmannabrautar, Hilmisgötu og Bárustígs, vegna stórbyggingar Hótels Vestmannaeyja. Halldór leit líka við á bryggjunni, þar sem alltaf er líf. Myndaði meðal annars nýja bátinn hans Georgs Eiðs Arnarsonar.