Grímur kokkur er eitt fyrirtækja sem hlýtur viðurkenningu Morgunblaðsins, Vitann 2014. Morgunblaðið veitir 10 vaxtabroddum í atvinnulífinu viðurkenningu eftir hringferð blaðsins um landið og hefur viðurkenningin hlotið nafnið Vitinn.
Í umfjöllun um fyrirtækið í Morgunblaðinu í dag kemur m.a. fram að Grímur kokkur hafi vaxið á hverju ári frá því að starfsemin hófst, og er þá væntanlega átt við fyrirtækið, ekki eigandann Grím Gíslason sem er hinn eini sanni Grímur kokkur. Grími hafi blöskrað að í stærstu verstöð landsins væri flutt jafn mikið af óunnum fiski út og ákvað því að reyna gera verðmætari vöru úr honum.
Allar vörur eru sendar tvisvar á dag frá Eyjum og eru tveir sölumenn starfandi í höfuðborginni. Alls eru 18 starfsmenn í Eyjum og réttirnir sem framleiddir eru, eru um þrjátíu talsins. �?eirra þekktastur er auðvitað plokkfiskurinn. �??Fyrir hálfu öðru ári flutti Grímur kokkur í núverandi húsnæði sem er tæpir ellefu hundrað fermetrar að stærð. �?ar er nýtískulegur og fullkominn framleiðslubúnaður, að hluta til innfluttur og að hluta til smíðaður í Eyjum,�?? segir í umfjöllun Morgunblaðsins.
Nýr framkvæmdastjóri tekinn tali í Eyjafréttum
Í nýjasta tölublaði Eyjafrétta er svo viðtal við nýráðin framkvæmdastjóra Gríms kokks, Jónu Sigríði Guðmundsdóttur. �?að voru 14 sem sóttu um starf framkvæmdastjóra hjá Grími kokk ehf. og sjö voru tekin í viðtal. Annað veit Jóna ekki um ráðningarferlið en er eðlilega ánægð með niðurstöðuna. �??Mér finnst ég vera mjög heppin að fá þetta tækifæri og það er mikill hugur í eigendunum. �?að að fá vinnu í Vestmannaeyjum er mikill kostur. Hjá Fiskistofu hef ég verið mikið á ferðinni um allt land og má gera ráð fyrir að það minnki. Einnig er það tilhlökkunarefni að fara að vinna með því fólki sem starfar hjá Grími kokk ehf,�?? segir Jóna meðal annars.