Hver er það sem gætir barna þinna í frístundum?
Frístundir barna hafa aukist mikið á síðustu árum.
�?� Meðalmannskja sem lifir í 70 ár eyðir
27 árum í frítíma
24 árum í svefn
7,33 árum í vinnu
4,33 í formlega menntun
2,33 í að borða
(Rannsókn Weiskopf frá 1982)
�?að þarf engan sérfræðing til að sjá það að frítíminn er mikill og að því sögðu er
Tómstundamenntun eitthvað sem öll skólastig ættu að spá mun meira í.
Tómstundamenntun er ætluð að kenna fólki að nota frítíma sinn á uppbyggjandi hátt og þar með auka lífsgæði. Ungt fólk á aldrinum 14-25 ára er með mestan frítíma í samanburði við flesta aðra aldurshópa. Sumr líta á frístundaver og félagsmiðtöðvar sem einskonar geymslu fyrir börnin.
Grundvöllur starfs fagfólks í frítímaþjónustu er virðing fyrir manngildi og sérstöðu hvers einstaklings og trú á getu hans til að nýta hæfileika sína til fulls. Fagfólk í frítímaþjónustu stuðlar að því að einstaklingar fái notið jafnra tækifæra til innihaldsríks frítíma og leggur áherslu á heilbrigða lífshætti og forvarnir.
�?að þarf kannski ekkert að fara í saumana á því hvað formlegt og óformlegt nám er, en til þess að stikla á stóru þá fer hið óformlega nám oftast fram utan skóla þar sem börn og unglingar öðlast færni, þekkingu og almennan þroska sem nýtist í lífinu almennt – óformlegt nám finnst t.d. í félagsmiðstöðvum, tónlistarnámi og íþróttum. �?að er ekki á allra færi að hafa börn sín í íþróttum og tónlistarnámi og um það þarf ekkert að ræða neitt frekar.
Sem unglingur stundaði ég félagsmiðstöðina mína af miklum krafti, ég elskaði að vera þar, ég elskaði starfsfólkið….en hvað var það sem félagsmiðstöðin gerði sem var svona gott?
Í félagsmiðstöðvum lærir maður svo margt, í mínu tilfelli lærði ég hvernig ég ætti að takast á við lífið (stór orð! en sönn) , það jók félagshæfni mína og úr þessu ferli fékk ég jákvæðari sjálfsmynd. �?g viðurkenni það fúslega sem unglingur var ég ekkert að pæla í þessu, það er ekki fyrr en maður verður eldri og virkilega hugsar um hvað það var sem mótaði mann sem einstakling.
Hver einasta manneskja á rétt á því að finna sér eitthvað við sitt hæfi, finna hæfileika sína, rækta þá og leyfa þeim að blómstra. Félagsmiðstöðin er kjörinn vettvangur til þess.
Er heimabær minn ekki alveg örugglega að átta sig á mikilvægi félagsmiðstöðva?
Hjalti Enok Pálsson
Tómstunda- og félagsmálafræðingur