Um 85% af allri fjáröflun félagsins
Árið 2014 er senn á enda og skapast hefur hefð að sprengja gamla árið í burtu með flugeldum. Flugeldasala Björgunarfélags Vestmannaeyja er hafin.Flugeldasalan verður með hefðbundnu sniði, opið verður í dag til 21:00, á gamlársdag frá 09:00-16:00 og á þrettándanum þann 9. janúar frá 13:00-19:00.
Í ár eins og síðastliðin ár verður stórglæsileg brenna og flugeldasýning í samstarfi við ÍBV á gamlársdag. Flugeldasala Björgunarfélagsins er þeirra aðal fjáröflun og skiptir allur stuðningur við félagið miklu máli. Adolf �?órsson sagði í samtali við Eyjafréttir að flugeldasalan væri höfuð, herðar, bakið og hryggurinn í allri fjáröflun sveitarinar. �??Í prósentum talið er flugeldasalan um 85% af allri fjáröflun. Í ár höfum við skráð 17 útköll en það er meðalár. Í félaginu er gríðarlega stór hópur góðra einstaklinga, en dagsdaglega eru 35 virkir en í stærri útköllum bætist við umtalsvert af fólki.�??
�??Við erum með gríðarlegt vöruúrval, verðið er ekki til að fæla frá við reynum að halda því í algjöru lágmarki og frekar að lækka, það er okkar regla, �?? sagði Adolf að lokum og hlakkaði til að taka á móti sem flestum Eyjamönnum.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.