Landeyjahöfn eða sandeyjahöfn
Landeyjahöfn er enn einu sinni komin í fréttirnar og enn og aftur fyrir það að höfnin sé full af sandi. �?egar maður skoðar myndina inni á eyjafréttum, sem fylgir fréttinni, þá sést vel að það er hægt að ganga þurrum fótum um hluta af höfninni og það rifjaðist upp fyrir mér, svona til gamans, sumar af yfirlýsingum Sigurðar Áss í gegnum árin. Fyrst, þessi óvenju mikli sandburður er vegna goss í Eyjafjallajökli. Við vitum öll í dag að þetta var bara bull, sem og yfirlýsing hans um að Markarfljót væri að flytja óvenju mikinn sand niður og lagt í mikinn kostnað við að breyta farvegi þess til einskis. Síðan þá heyrum við hann reglulega lýsa því yfir að sandburðurinn hafi ekki aukist, en eins og ég hef orðað það svo oft áður, þá fer þetta algjörlega eftir veðri og vindum og bull Sigurðar um að náttúran myndi taka höfnina í sátt, er kannski besta dæmið um það, þegar menn eru að tala um hluti sem þeir hafa ekkert vit á, enda mun náttúran alltaf leitast við að útrýma þessu mannanna verki.
Eftir kynningarfundin í haust um nýsmíðina fjallaði ég um það að ég hefði fengið flass back þegar Sigurður sagði frá því, að reiknað væri með því að með nýsmíðinni yrðu frátafir í Landeyjahöfn aðeins 10 dagar. Nýlega var þessu breytt inni hjá Siglingamálastofnun í 10% og í ágætri kynningu á nýsmíðinni sem ég fékk frá Adda Steina, þá vorum við hins vegar algjörlega sammála um það, að það viti að sjálfsögðu enginn hversu miklar frátafirnar verða, en einn af skipstjórum Herjólfs sagði við mig fyrir nokkru síðan, að hann teldi að frátafirnar yrðu sambærilegar og á Herjólfi, og það sem verra væri, þessi nýja ferja gæti ekki siglt til �?orlákshafnar í tíðarfari eins og í vetur. �?g er nú ekki alveg sammála því, en eins og þekktur skipstjóri hér í bæ orðaði það við mig :”�?etta verður engin skemmtisigling.” Og nokkuð ljóst að fækkun koja um 2/3 er eitthvað sem Eyjamönnum hugnast svo sannarlega ekki.
�?g skrifaði grein í júlí 2013, minnir mig, þar sem ég gagnrýndi það að ekki væri tekið á þessum pöntunum fyrir pláss á bíladekkinu, þar sem að mörg dæmi eru um, og fleiri hafa fjallað um, að þrátt fyrir að Herjólfur sé fullbókaður, þá sé jafnvel dæmi um það að meiri en 30 bílar af biðlistum hafi komist með, og ég velti því upp hvort ekki væri rétt að sekta þá sem ættu bókað en mættu ekki, en mér var hins vegar nýlega bent á það, að í flestum tilvikum væru þetta flutningsfyrirtækin sem ættu stundum bókað fyrir allt að 6-7 gáma, en mættu svo kannski bara með 2-3, skil vel að Eimskip eigi kannski erfitt með að beita sektum á sig sjálft, svo klárlega er þetta stærra vandamál heldur en ég hélt og tjónið fyrir ferðaþjónustuna í Vestmannaeyjum gríðarlegt. Nú liggur fyrir að hönnuninni á nýju ferjunni er lokið og ljóst, að með henni verður nánast stöðnun í samgöngumálum okkar, þó svo að það eigi að reyna að bæta eitthvað við ferðum yfir sumar mánuðina. Yfir vetrar mánuðina, hins vegar, gæti þetta klárlega orðið afturför ef allt fer á versta veg.
�?g sá ágæta grein fyrir um mánuði síðan frá bæjarstjóranum okkar, þar sem hann kvartaði sáran yfir því, að tekjur bæjarins hefðu minnkað verulega vegna fækkun starfa til sjós, sem einmitt ég hef varað við árum saman, sem eina af afleiðingum hins svokallaða frjálsa framsals. �?eim mun sárara er þá að ná því ekki að nýta okkur þessar spár um verulega aukningu ferðamanna á næstu árum með því að fá hingað stærri og gangmeiri ferju, en ekki er búið að fjármagna nýsmíðina ennþá, svo það er enn hægt að grípa inn í og þess vegna hægt að stækka ferjuna ef menn vilja.
Heyrði sagt frá því fyrir nokkru síðan að þingmaður Sjálfstæðisflokksins í suður kjördæmi, hefði látið hafa eftir sér að það væri gríðarlega mikilvægt að nýsmíðin væri komin til Eyja rétt fyrir kosningarnar 2017. �?trúlega margir hafa líka sagt við mig að þetta sé líka það sem bæjarstjórinn okkar sé að hugsa, enda hugi hann á framboð einmitt það vor, ekki veit ég hvort að það sé rétt, en ég myndi hins vegar skilja það mjög vel enda bæjarstjórinn okkar í svipuðum málum og Landeyjahöfn, það fjarar svolítið hratt undan.

Nýjustu fréttir

Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
Í gær höfðu 96 kosið utan kjörfundar í Vestmannaeyjum
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.