Pabbi í lífshættu - Beið tvo klukkutíma eftir sjúkraflugi frá Akureyri
Á sunnudaginn fékk pabbi minn hjartaáfall. Hann var í lífshættu í rúma tvo tíma á meðan hann beið í tvo klukkutíma eftir sjúkraflugi frá Akureyri. Hvernig getur það verið að í dag árið 2015 búum við við margfalt meira óöryggi en fyrir 50 árum. Er það virkilega vilji stjórnvalda að ALLIR búi í Reykjavík? Eigum við að planta Eyjum í 101 Reykjavík? Vilja landsmenn ekki hafa val um að búa á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni? Eigum við að draga allan fisk að landi í Reykjavíkurhöfn? Hvert eigum við þá að færa Hörpuna?
Og plís ekki fara að tala um peninga, það getur ekki verið ódýrt að þurfa að fá sjúkravél frá Akureyri með allt lið innanborðs í hvert skipti sem eitthvað kemur uppá, eða að senda okkur hingað sérfræðinga daglega sem þurfa uppihald og dagpeninga. �?essi peningamál eru bara tilfærslur á milli. Tölur sem hent er á milli skjala. Við hér í Eyjum erum að tala um mannslíf.
Kallinn er seigur og mikið mildi að ekki fórr verr. �?g hef mikið hugsað um þetta óöryggi og haft áhyggjur af þessu ástandi, ekki bara núna. �?að er ekki spurning um hvort, heldur hvenær þetta hefur úrslitaáhrif og hver ætlar þá að taka ábyrgðina? Maður verður að velta því alvarlega fyrir sér hvort það sé búandi á eyjunni með börnin sín við þessar aðstæður.

Nýjustu fréttir

SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.