Birgir Nielsen heldur útgáfutónleika á Háaloftinu í kvöld
Í kvöld mun trommuleikari okkar Eyjamanna, Birgir Nielsen, halda útgáfutónleika á Háaloftinu og kynna nýútgefna plötu sína, Svartur 2, ení gærkvöldi var hann með útgáfutónleika á Kex í Reykjavík sem hann segir að hafi heppnast mjög vel.
Birgir hefur mikla reynslu í tónlistarheiminum og hefur starfað sem atvinnutónlistarmaður nær óslitið síðan 1990. Hann hefur til að mynda spilað með Landi & sonum, Vinum vors og Blóma, Sælgætisgerðinni, U2 Project, Klaufum, Blítt & Létt og svo auðvitað Tyrkja Guddu sem rokkar á hverju ári til heiðurs sjómönnum í Höllinni. Birgir byrjaði að spila á trommur sex ára gamall og var alltaf staðráðinn í að verða trommuleikari. Með honum eru nokkrir af bestu hljóðfæraleikurum landsins.
Húsið verður opnað klukkan 20.00 og tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 og það verður Litla Lú sem hitar upp.
Myndirnar eru frá tónleikunum á Kex í gærkvöldi.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.