-Hér fyrir neðan má sjá spá Veðurstofu Íslands fyrir morgundaginn 1. desember og er viðvörun í kortunum vegna óveðurs fyrir suðvesturland. �?að er alveg á hreinu að við Eyjamenn fáum eitthvað af gusunni yfir okkur, hér má búast við roki og öllu sem því getur fylgt. �?ó við séum ýmsu vön hér í Eyjum þá vill lögreglan biðja þig um að ganga einu sinni í kringum húsið þitt og athuga hvort allt sé ekki vel fest niður þ.e. engir lausamunir sem geta farið af stað og gluggar vel lokaðir. Að lokum þá viljum við biðja þig að fylgjast með fréttum og veðurspám í kvöld.
EF AÐSTOÐAR VERÐUR �?�?RF HRINGDU �?Á Í NEYÐARLÍNUNA Í 112, segir lögreglan í Vestmannaeyjum á heimasíðu sinni í gærkvöldi.
Og áfram er haldið: Veðurstofa Íslands hefur sent frá sér viðvörun vegna óveðurs á landinu á morgun, 1. desember. Viðvörunin er send af vakthafandi veðurfræðingum og fer hér að neðan í heild:
�??Á morgun, 1. desember, ganga skil norðaustur yfir landið með austan stormi og hríðarbyl á öllu landinu, fyrst suðvestantil. Á morgun er því ekkert ferðaveður.
Spá fyrir landið suðvestanvert: Vaxandi austan átt í nótt. Snemma í fyrramálið má búast við slæmu skyggni vegna skafrennings víða suðvestanlands, þar með talið á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesbraut. Hvessir enn þegar líður á morguninn og fer að snjóa og búast má við mikilli snjókomu fram eftir degi. Síðdegis milli kl 15. og 18. snýst vindur í hægari vestan átt með éljagangi, fyrst á Reykjanesi. Versnandi veðri er spáð austanlands seint.�??
Skafbylur upp úr kl. 6 í fyrramálið
Í viðvörun frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar segir: �??Sjónir manna beinast að skilum með snjókomu sem nálgast úr suðvestri í nótt. Samkvæmt nýjum spám frá í morgun er gert ráð fyrir að stormur verði með skafbyl þegar upp úr kl. 6 í fyrramálið. Takmarkað skyggni og hætt er við að færð geti spillst víða um vestanvert landið. Nú er útlit fyrir að skilin komist vel inn á land og þá lægir með vægri þíðu fljótlega um og upp úr hádegi.�??