Lögreglan varar við kolvitlausu veðri
-Hér fyrir neðan má sjá spá Veðurstofu Íslands fyrir morgundaginn 1. desember og er viðvörun í kortunum vegna óveðurs fyrir suðvesturland. �?að er alveg á hreinu að við Eyjamenn fáum eitthvað af gusunni yfir okkur, hér má búast við roki og öllu sem því getur fylgt. �?ó við séum ýmsu vön hér í Eyjum þá vill lögreglan biðja þig um að ganga einu sinni í kringum húsið þitt og athuga hvort allt sé ekki vel fest niður þ.e. engir lausamunir sem geta farið af stað og gluggar vel lokaðir. Að lokum þá viljum við biðja þig að fylgjast með fréttum og veðurspám í kvöld.
EF AÐSTOÐAR VERÐUR �?�?RF HRINGDU �?Á Í NEYÐARLÍNUNA Í 112, segir lögreglan í Vestmannaeyjum á heimasíðu sinni í gærkvöldi.
Og áfram er haldið: Veður­stofa Íslands hef­ur sent frá sér viðvör­un vegna óveðurs á land­inu á morg­un, 1. des­em­ber. Viðvör­un­in er send af vakt­haf­andi veður­fræðing­um og fer hér að neðan í heild:
�??Á morg­un, 1. des­em­ber, ganga skil norðaust­ur yfir landið með aust­an stormi og hríðarbyl á öllu land­inu, fyrst suðvest­an­til. Á morg­un er því ekk­ert ferðaveður.
Spá fyr­ir landið suðvest­an­vert: Vax­andi aust­an átt í nótt. Snemma í fyrra­málið má bú­ast við slæmu skyggni vegna skafrenn­ings víða suðvest­an­lands, þar með talið á höfuðborg­ar­svæðinu og á Reykja­nes­braut. Hvess­ir enn þegar líður á morg­un­inn og fer að snjóa og bú­ast má við mik­illi snjó­komu fram eft­ir degi. Síðdeg­is milli kl 15. og 18. snýst vind­ur í hæg­ari vest­an átt með élja­gangi, fyrst á Reykja­nesi. Versn­andi veðri er spáð aust­an­lands seint.�??
Skaf­byl­ur upp úr kl. 6 í fyrra­málið
Í viðvör­un frá veður­fræðingi Vega­gerðar­inn­ar seg­ir: �??Sjón­ir manna bein­ast að skil­um með snjó­komu sem nálg­ast úr suðvestri í nótt. Sam­kvæmt nýj­um spám frá í morg­un er gert ráð fyr­ir að storm­ur verði með skaf­byl þegar upp úr kl. 6 í fyrra­málið. Tak­markað skyggni og hætt er við að færð geti spillst víða um vest­an­vert landið. Nú er út­lit fyr­ir að skil­in kom­ist vel inn á land og þá læg­ir með vægri þíðu fljót­lega um og upp úr há­degi.�??

Nýjustu fréttir

Kristrún ánægð með heimsókn til Vestmannaeyja
H verslun með pop up verslun í Eyjum
Hafna ósk Terra um styttri opnunartíma
Mugison, saft í brúsa og pönsur á Skansinum
Grjóthrun við Friðarhöfn
Lægsta tilboð í svið á Vigtartorgi 10,6 milljónum yfir áætlun
Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar
Rauðáta gæti orðið ný atvinnugrein
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.