Lögreglan hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið og fór töluverður tími lögreglunnar í rannsókn og eftirlit vegna bruna að Hilmisgötu 1 þann 24. október sl. Þegar hefur verið gerð grein fyrir brunanum í fjölmiðlum. Tvö eignapjöll voru tilkynnt lögreglunni í vikunnis sem leið en í báðum tilvikum var um að ræða rúðubrot. Að morgni 26. október sl. var lögreglu tilkynnt um rúðubrot í Ráðhúsinu en talið er að rúðan hafi verið brotin aðfaranótt sama dags. Ekki er vitað hver þarna var að verki og óskar lögreglan eftir því að þeir sem eitthvað viti um málið hafi samband við lögreglu.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.