Útvegsbændafélagið Heimaey lýsir fullum stuðningi við ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að heimila veiðar á hrefnu og langreyði. Þá er því fagnað að ákvörðunin skuli gilda í fimm ár líkt og almenn venja er innan Alþjóða hvalveiðiráðsins. Á meðan rannsóknir sýna að stofnanir eru ekki í hættu er ekkert eðlilegra en að þjóð sem alltaf hefur byggt stóran hluta af tilveru sinni á sjósókn sæki í stofnana.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst