Gleðilegt sumar

Já, lundinn settist upp í kvöld 16. apríl og þar með er komið sumar hjá mér. Hann settist reyndar upp þann 14. í fyrra, en mér fannst þessar köldu, vestlægu áttir síðustu daga ekki vera beint rétta veðurfarið, en hæg suðlæg átt eins og núna í kvöld er einmitt besta veðurfarið.

Lundinn settist upp í Grímsey þann 11. sl. en mörgum finnst það skrítið að hann skuli setjast upp fyrr fyrir norðan heldur en hér fyrir sunnan og frekar líklegt, að sum staðar fyrir norðan þurfi hann að grafa sig í gegn um snjó og klaka, en hann er harður af sér og við munum kannski, þau sem eldri erum, að sumarið 1973 gróf hann sig í gegn um ösku til að komast í holuna sína hér í Eyjum.

Væntingar mínar fyrir sumarið eru þær, að vonandi förum við að sjá meira af ungfuglinum sem komist hefur á legg seinustu ár, skila sér hér til eyja. Áhyggjuefnið er að sjálfsögðu það, hvort hér verði nægilegt æti, enda eins og ég hef komið inn á stundum áður, þá er orðið stór vandamál hversu mikið er af fiski í hafinu sem ekki má veiða, sem aftur kallar á það að ætisskortur verði þá hjá fuglinum.

Varðandi veiðidaga, þá hef ég enga sérstaka skoðun á því aðra en þá að vonandi verða leyfðir einhverjir dagar eins og síðustu ár, en við félagarnir sem höfum farið til Grímseyjar síðustu árin erum í Grímseyjar hugleiðingum enn eitt árið og vonandi gengur það eftir.

Gleðilegt sumar allir.

Nýjustu fréttir

Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Áframhaldandi hvassviðri út vikuna  
Áætlun um rýmingu Heimaeyjar eftir að Surtsey fór að gjósa
Loðnu að finna á stóru svæði
Íbúakosning samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.