​Orð í bauk
28. júlí, 2020

Ekki alls fyrir löngu tók Herjólfur örlítinn snúning fyrir utan Landeyjahöfn. Netverjar og álitsgjafar voru fljótir að taka sér lyklaborð í hönd og banna fólki að ræða málið af sannleika, því sannleikurinn er víst stundum sagna verstur. 

Ég ætla því að fylgja þessum fyrirmælum og mæla nokkur orð um hann Herjólf blessaðann, já blessaður er hann, smíðaður hjá hvorki meira né minna en Crist ​S​.A​ í Póllandi forðum daga.

Lyktin

I love the smell of napalm in the morning sagði Robert Duvall í myndinni Apocalypse Now og er hún ein hinna gullnu setninga kvikmyndanna. Ég er eins hugsandi. I love the smell of the garbage from Sorpa in Herjólfur inn the morning. Mikið þykir mér vænt um að finna þessa dásamlegu lykt sem umlykur farþegarými Herjólfs á morgnana þegar verið er flytja dásamlegt ruslið okkar sem ekki má brenna upp á land, svo ég tali ekki um dásamlegan ilminn af fiskafurðum sem verið er að flytja upp á land. Þetta smýgur líka inn í bílana okkar svo ilmurinn fylgir okkur það sem eftir er dagsins.

Ekki finnst mér síður dásamlegt að stíga í ilmandi affall fiskflutningsbílana þannig að það berist inn í bílinn og fylgi þar með daginn eftir líka. Æ hvað sagði ekki nóbelskáldið: Æ þú kútlausa skítalykt. Já, þetta er lyktin af peningum gott fólk. Ég sé enga ástæðu til þess að krefjast þess að Sorpa bjóði upp á loftþétta og lykthelda gáma í þessa flutninga. Hvað þá að gerðar séu kröfur til fiskflutninga. Þetta er svo notalegt svona.

Brúin

Ég get ekki lýst hrifningu minni á því að tekin hafi verið ákvörðun um að skipta um fa​r​þegabrúna núna um mitt sumar þegar nánast enga ferðamenn er að sjá. Fólk hefur bara gott af því að ganga með bílunum út. Þetta mátti auðvitað ekki gera að vetri til, þegar eyjan iðar af mannlífi, veitingastaðir eru fullir og fólk stendur í biðröðum utan hótelanna. Já, þarna ráða för menn sem hafa puttann á púlsinum.

Sjöunda ferðin, Corona veiran

Þar sem ég dundaði við það einhverntímann í fyrndinni að koma nálægt pólitík get ég upplýst háttvirta kjósendur um það að ég man ekkert eftir því að lofað hafi verið sjö ferðum á dag. Þessar sex sem nú er boðið uppá nægja fullkomlega. Það er nú ekki eins og fólk komist ekki með, hvað þá bílar. Annað væri ef skipið væri troðfullt af fólki og bílar endalaust á biðlista. Þar fyrir utan er fólk svo passasamt vegna Corona veirunnar. Já, ef sjöundu ferðinni yrði bætt við yrði bara ennþá meiri aðskilnaður fólks og það viljum við ekki, því maður er manns gaman, sérstaklega í öndunarvél.

17​.​ ágúst

Það er engin ástæða til þess að flýta sér að samningaborðinu vegna hugsanlegs verkfalls. Það er alltaf hægt að grípa til gamla Herjólfs ef í harðbakkann slær. Þetta er líka svo skemmtileg kynning fyrir eyjarnar þegar allt er í hers höndum. Fólk bókstaflega flykkist í Landeyjahöfn til að fara með þeim gamla. Hann er líka dísel.

Sumarfríið

Það var vel til fundið hjá framkvæmdastjóranum að skella sér norður um heiðar til Húsavíkur í frí, núna þegar ekkert er að gera. Það þarf ekkert að taka merkilegar ákvarðanir núna. Ó ég sé hann fyrir mér núna, inni á kaffihúsi á nýjum höfuðstað norðurlands með bauk í hönd, horfandi aðdáunaraugum á hvalina bylta sér í sjávarborðinu kyrjandi nýjan þjóðsöng Húsvíkinga, ja ja ding dong.

 

Kveðja frá miklum aðdáanda

Alfreð Alfreðssyni

Höfundur er íbúi í Vestmannaeyjum

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst