Sigurður Arnar áfram með ÍBV
sigurdur_arnar_ibvsp.jpg
Sigurður Arnar Magnússon. Ljósmynd/ÍBV

Sigurður Arnar Magnússon verður áfram leikmaður ÍBV og tekur þátt með liðinu í Lengjudeildinni á þessu ári. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu ÍBV.

Sigurður er 24 ára varnarmaður sem hefur einnig leikið á miðjunni í nokkrum leikjum, en hann er Eyjamaður mikill og kemur til með að gera atlögu að sæti í efstu deild með ÍBV á árinu.

Sigurður hefur leikið fyrir ÍBV alla sína ævi, fyrir utan 5 leiki sem hann lék með KFS í 4. deildinni þar sem hann skoraði 4 mörk. Hann hefur leikið 110 leiki í efstu tveimur deildunum fyrir ÍBV og skorað í þeim 10 mörk.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.