Um næstu mánaðamót rennur út samningur Vegagerðarinnar við Flugfélagið Erni um áætlunarflug til Vestmannaeyja.
Ný verðkönnun stendur yfir þar sem ekki var hægt að framlengja við Erni vegna reglna um hámarksgreiðslur sem eiga við um þetta tímabundna flug. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni verður allt gert til þess að ekki verði rof á þjónustunni og flogið verði út mars.
Bæjaryfirvöld hafa margsinnis á undanförnum vikum óskað eftir því að flugferðum verði fjölgað og flugtímabilið lengt í ljósi þess hve erfiðar samgöngur eru í Landeyjahöfn.
Í sameiginlegri bókun bæjarstjórnar Vestmannaeyja sem samþykkt var á fimmtudaginn sl. segir að bæjarstjórn fari fram á það við innviðaráðherra að allt verði gert til að tryggja áframhaldandi áætlunarflug til Vestmannaeyja. Bæjarstjórn treystir á að þingmenn kjördæmisins fylgi þessari kröfu fast eftir.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst