Matey lofuð í Time Out
Matey
Matey

Matarhátíðin Matey fær mikið lof í breska vefritinu Time Out í dag. Þar gerir blaðamaðurinn Ella Doyle upp heimsókn sína til Vestmannaeyja síðasta haust.

„Þegar maður hugsar um Ísland hugsar maður um hveri, fossa, svartar sandstrendur og norðurljós. Og þegar maður hugsar um mat á Íslandi þá hugsar maður um Reykjavík. Hvers vegna myndirðu ekki? Veitingastaðirnir þar eru óviðjafnanlegir.
Ég sleppti því alveg. Ég flaug inn í Reykjavík og komst beint í bíl til Vestmannaeyja, eyjaklasi 15 eyja við suðurströnd Íslands með rúmlega 4000 íbúa. Eyjarnar eru þekktastar fyrir eldgos sem varð þar árið 1973 við bæjardyrnar og fóru mörg húsana undir hraun. Já, og það hefur verið orðrómur um að þar sé lítilát höfuðborg matgæðinga Íslands. Þess vegna erum ég hér, komin á Matey Seafood Festival, flotta veitingahátíð sem enn er á frumstigi.“

segir í upphafi greinar Ellu. Þar rekur hún ferðasögu sína samhliða því að gera matarhátíðinni góð skil auk þess að fjalla um sögu Vestmannaeyja. Í upphafi segir hún:

„Hér er ástæðan fyrir því að við útnefndum Matey Seafood Festival eitt það besta sem hægt er að gera í heiminum á þessu ári.“

Sannarlega góð kynning fyrir Vestmannaeyjar, ferðaþjónustuna í Eyjum og síðast enn ekki síst rós í hnappagat Mateyjar. Hér má sjá alla umfjöllun tímaritsins.

https://eyjar.net/matey-sett-i-gaer/

 

 

Nýjustu fréttir

Aðalfundur Farsæls haldinn 25. september
Eyjakonur hefja lokasprettinn á heimavelli
ÍBV með ótrúlegan endurkomusigur gegn Fram
Hætt við efnistöku við Eldfellsveg
Vosbúð styrkir mikilvægt starf Krabbavarnar
Orka náttúrunnar verður bakhjarl Uppsprettu
Halldór smíðakennari – Stoltur af mínu fólki
Samningi við Endurvinnsluna sagt upp vegna breyttra áherslna hjá Heimaey
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.