Um hádegi í dag kom til hafnar í Eyjum flutningaskipið Longdawn. Grunur er um að skipið hafi siglt á strandveiðibát sem sökk norðvestur af Garðskaga í nótt.
Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að mannbjörg hafi orðið þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga á þriðja tímanum í nótt. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá skipstjóra annars strandveiðibáts klukkan 02:42 þess efnis að bátur í grenndinni væri að sökkva um 6 sjómílur norðvestur af Garðskagavita. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út á hæsta forgangi ásamt sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum. Þá voru nálæg fiskiskip og bátar beðin um að halda á staðinn.
Skömmu eftir að neyðarkallið barst Landhelgisgæslunni hafði tilkynnandi aftur samband og tjáði varðstjórum í stjórnstöð að hann væri búinn að bjarga manninum úr sjónum en bátsverjanum tókst að komast í björgunargalla áður en bátur hans sökk. Maðurinn var kaldur eftir veruna í sjónum og var ákveðið að sjúkrabíll biði hans á bryggjunni á Sandgerði. Sá sem bjargaði manninum sigldi með hann þangað. Báturinn marar í hálfu kafi og munu sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar freista þess að draga hann til hafnar.
Landhelgisgæslan vill koma á framfæri sérstökum þökkum til skipstjóra strandveiðibátsins sem sýndi mikið snarræði við björgun mannsins og einnig til annarra viðbragðaðila sem brugðust við með skjótum og fumlausum hætti.
Fulltrúar Samgöngustofu, Gæslunnar og rannsóknarnefndar samgönguslysa til Eyja
Haft er eftir Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar á vef Fiskifrétta að þegar Landhelgisgæslan hafi farið að skoða feril skipanna í nótt kom í ljós að flutningaskip og þessi strandveiðibátur voru á sömu slóðum á sama tíma. Vegna þess ákvað Landhelgisgæslan að beina þessu skipi til hafnar í Vestmannaeyjum til skýrslutöku.
Segir Ásgeir að lögreglan í Eyjum muni taka skýrslu af skipstjóra flutningaskipsins „Fulltrúar Samgöngustofu, Gæslunnar og rannsóknarnefndar samgönguslysa munu sömuleiðis fara til Eyja,“ segir Ásgeir.
Lögreglan á Suðurnesjum muni síðan fara með rannsókn málsins. Þetta sé eitt af því sem sé til skoðunar. Óskar Pétur Friðriksson smellti meðfylgjandi myndum við komu skipsins til Eyja í hádeginu.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.