Ný Bergey afhent í Noregi

Í dag var ný Bergey VE afhent Bergi-Hugin, dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar í Vestmannaeyjum, í Aukra í Noregi. Bergey er eitt af sjö skipum sem skipasmíðastöðin Vard smíðar fyrir íslensk fyrirtæki og er hún systurskip Vestmannaeyjar VE sem afhent var Bergi-Hugin í júlímánuði sl.

Skipið er hið glæsilegasta og í alla staði vel búið. Um er að ræða togskip sem er 28,9 m að lengd og 12 m að breidd. Stærð þess er 611 brúttótonn. Skipið er m.a. búið tveimur aðalvélum og tveimur skrúfum.

Afhending skipsins fór fram með viðhöfn í morgun og er gert ráð fyrir að það sigli áleiðis til Íslands á morgun. Bergey mun halda beint til Akureyrar þar sem Slippurinn mun annast frágang á millidekki og gæti verið komin þangað á laugardagskvöld. Væntanlega mun Bergey ekki koma til heimahafnar í Vestmannaeyjum fyrr en einhvern tímann í desembermánuði.

greint er frá á facebook síðu Síldarvinnslunnar

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.