Bergur VE kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum á miðvikudaginn með fullfermi af karfa að aflokinni stuttri veiðiferð. rætt er við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra á vef Síldarvinnslunnar. Þar er hann spurður hvernig veiðin hefði gengið.
,,Hún gekk býsna vel. Það var jöfn og góð veiði. Veitt var á Reykjaneshryggnum en síðasta holið var þó tekið á Fjórtán mílna hryggnum. Þarna var nóg af karfa á báðum stöðum og veðrið var hið þokkalegasta en þó fengum við kaldafýlu á landleiðinni. Staðreyndin er sú að það kom okkur á óvart hve vel gekk að veiða. Túrinn var um tveir sólarhringar höfn í höfn, sextán tímar fóru í stím þannig að við vorum einungis þrjátíu tíma að veiðum. Menn geta ekki verið annað en sáttir við það. Næsti túr verður væntanlega ýsutúr og þá verður farið austureftir,”
Er haft eftir Ragnari á vef Síldarvinnslunnar. Bergur hélt til veiða á ný í gær.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst