Fín aflabrögð hjá Vinnslustöðvarskipunum
K94A1187
Huginn VE við komuna til Eyja í morgun. Ljósmynd/vsv.is

Það var líflegt um að litast á hafnarsvæðinu í morgun. Gullberg VE á leið á miðin og Huginn VE á leið til hafnar. Á meðan var verið að landa úr Breka VE. Allt að gerast, sem sagt, segir í frétt á vef Vinnslustöðvarinnar – vsv.is.

Huginn var með um 480 tonn af Íslandssíld. Breki var með 516 kör, rúmlega 140 tonn af blönduðum afla, þorski, ufsa, ýsu, karfa o.fl. Breki heldur aftur á miðin í kvöld. Gullberg VE er á leið á á sildarmiðin, vestur úr Faxaflóa. Þar hefur verið að veiðast íslensk síld.

Á morgun verða svo landanir úr Drangavík, Þórunni Sveinsdóttur og Kap. Að sögn Sverris Haraldssonar, sviðsstjóra bolfisksviðs eru öll þau skip með fínan afla. ,,Það spáir slæmu veðri og sjólagi á morgun en fer svo batnandi, ” segir Sverrir í samtali við Vinnslustöðvar-vefinn.  Myndband frá í morgun má sjá hér að neðan. Fleiri myndir má sjá hér.

Play Video

Nýjustu fréttir

Breyttur útivistartími barna frá og með deginum í dag
Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag
Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Olís deildirnar hefjast í vikunni
Helgarnir sigruðu á 100 ára afmælismótum TV
Fræðsla um átraskanir í Landakirkju
Stefnt að þrýstiprófunum á NSL-4 í vikunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.