Herjólfur til Þorlákshafnar
Herjólfur_2023_ÓPF_DSC_1763
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fyrri ferð dagsins. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45.  Farþegar sem áttu bókað á þessum tímasetningum í Landeyjahöfn færast sjálfkrafa á milli hafna, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Þá segir að ferðir kl. 08:15, 09:30, 12:00,13:15, 14:30,15:45 falli niður.  Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.

Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Strætó fer frá Mjódd kl. 09:00. Hvað varðar siglingar fyrir seinni partinn þá gefur skipafélagið út tilkynningu fyrir kl. 15:00.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.