Apríl Aglow samveran verður í kvöld 2. apríl kl. 19.30 í safnaðarheimili Landkirkju. Það styttist í páska og verður hátíðlegra yfirbragð yfir fundinum. Við munum eiga gott samfélag saman, byrjum með góðum veitingum, syngum saman og heyrum uppörvandi boðskap. Þóranna M. Sigurbergsdóttir talar til okkar, hún dvaldi í Keníu í janúar og febrúar og fór í ferð um landið í mars og dvaldi rúma viku á Vopnarfirði. Hún mun segja frá ýmsu frá Afríku og fjalla um upprisuvonina og horfa til þeirrar gleði sem við eigum í Drottni. ,,En þeir sem vona á Drottinn fá nýjan kraft, þeir fljúga upp á vængjum sem ernir, þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki.” Jesaja 40.31
Stórt kvennamót verður haldið 25.- 26. apríl á Hótel Selfossi. Hópur kvenna kemur erlendis frá og konur víða af landinu mæta. Það er gefandi að fara og hitta aðra og þar verður góð lofgjörð, kennsla og samfélag. Allar konur velkomnar. Nánari upplýsingar og skráning á Inspire Iceland 2025.
Síðasta Aglow samvera vetrarins verður 7. maí og verður hún auglýst nánar þegar nær dregur. Gleðilega páska !




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.