Keppti á sínu fjórða fitnessmóti um helgina
8. apríl, 2025
Dagmar Pálsdóttir (lengst til hægri) á sviði um helgina.

Dagmar Pálsdóttir keppti um síðustu helgi á Íslandsmótinu í fitness og keppti þá á sínu fjórða móti í módel fitness. Mótið fór fram í Hofi á Akureyri og var keppnin afar hörð og jöfn. Dagmar fór ekki á pall í þetta sinn en stóð sig enga síður ótrúlega vel.

Dagmar er 34 ára gömul og býr ásamt eiginmanni sínum, Sigurði Guðnasyni og strákum sínum tveim, Kristni Frey og Halldóri Hauk hér í Eyjum, en auk þeirra á hún tvö bónusbörn þau Guðna Pál og Guðrúnu Hebu. Dagmar starfar í Grunnskóla Vestmannaeyja og stundar samhliða því líkamsrækt að kappi. Hún byrjaði í ræktinni árið 2009 og þá var ekki aftur snúið. Áhugi hennar beindist fljótt að módel fitness og stefndi hún að því að taka þátt árið 2010, en varð ólétt það ár og frestaði því þátttöku.

Það var svo árið 2014 sem hún lét til skara skríða og ákvað að taka þátt. Hún keppti aftur árið 2017 og svo 2019. Dagmar tók sér smá pásu eftir það og eignaðist yngri drenginn sinn 2021. Hún ákvað svo að snúa aftur til keppni núna 2025 og var það hennar fjórða skipti á sviði.

Undirbúningur fyrir mót sem þessi krefjast verulegs undirbúnings, aga og vinnu. Við náðum tali að Dagmar og fengum að heyra í henni hljóðið eftir mótið.

,,Undirbúningurinn fyrir mótið var mjög langur og strembinn hjá mér segir Dagmar. Maðurinn minn er sjómaður og ég mikið ein með strákana mína. Ég hefði ekki getað þetta án stuðnings frá eldri stráknum mínum sem er 14 ára. Hann hjálpaði mikið til og passaði yngri bróðir sinn ef ég þurfti að skjótast í ræktina um helgar“, segir Dagmar. Þrátt fyrir mikla undirbúningsvinnu hefur Dagmar enga að síður mjög gaman að ferlinu og segir það virkilega skemmtilegt að hafa markmið að vinna að.

Dagmar var í fjarþjálfun hjá Gunnari Stefáni Péturssyni sem hún segir að hafi verið afar mikilvægur hlekkur í undirbúningsferlinu, en hún hefur verið í þjálfun hjá honum síðan 2018 með hléum.

Tilbúin að stíga á svið.

Aðspurð hvað sé mest krefjandi við undirbúning fyrir slík mót segir hún að það sé einna helst að ná að samræma æfingar við heimilislífið, einnig að þurfa að elda tvo rétti á kvöldin og undirbúa og skipuleggja máltíðarnar sínar.

En hvernig leið Dagmar á keppnisdaginn?

,,Mér leið bara mjög vel á keppnisdaginn, enda var ég ekki að gera þetta í fyrsta skipti. Ég fann þegar ég gekk inn á svið að adrenalínið fór alveg í botn og stressið fylgdi með. En ég minnti sjálfa mig á að njóta og hafa gaman. Þetta gerist allt svo hratt og áður en maður veit þá er bara þessi dagur búinn og við tekur næsta markmið.“

Hver eru framtíðarplön þín varðandi fitness? 

,,Nú tekur bara við uppbygging og ég ætla mér að taka þátt aftur, en hvar og hvenær það verður er ég ekki viss um. Þetta er bara lífsstíll sem maður lifir og maður hættir því ekkert.“

Hvernig hafa viðbrögð fólksins í kringum þig verið varðandi þína þátttöku í fitnesss?

,,Ég lét fáa vita þátttöku minni því ég vildi ekki setja auka pressu á mig, en auðvitað fékk ég góðan stuðning frá flest öllum í kringum mig“, segir Dagmar.

Hvaða ráð myndir þú gefa öðrum stelpum sem langar að taka þátt í svona keppni?

,,Ég myndi segja ,,go for it“, en þetta er alls ekki auðvelt og ekki fyrir alla, en maður veit það ekki nema að prófa. Fyrir þær sem langar að prófa mæli ég með að gefa sér góðan tíma í ferlið því þetta er langhlaup. Þetta er ótrúlega skemmtilegt ferli og maður kynnist mikið af skemmtilegu fólki í gegnum þetta. Ég mæli með að finna góðan þjálfara sem heldur utan málin, bæði á meðan undirbúningi stendur og einnig eftir keppni segir Dagmar að lokum.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 3 Tbl 25
3. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Vsv Logo Blue Vsv
29. apríl 2025
17:00
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar
Aðalfundur ÍBV Íþróttafélags
29. apríl 2025
17:00
Aðalfundur ÍBV Íþróttafélags
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst