Safnað fyrir Bergið Headspace í Krónunni
27. maí, 2025
Ljósmynd/aðsend.

Krónan mun standa fyrir söfnun fyrir stuðnings- og ráðgjafasetrið Bergið Headspace í verslunum sínum um allt land á morgun og á fimmtudaginn, dagana 28. og 29. maí. Þá býðst viðskiptavinum að gefa 500 krónur eða meira á sjálfsafgreiðslukössum og í Skannað og skundað í lokaskrefi afgreiðslu. Upphæðin rennur óskert til Bergsins sem veitir ungmennum á aldrinum 12 til 25 ára fría ráðgjöf og aðstoð með það að markmiði að bæta líðan og auka virkni þeirra í samfélaginu.

Líðan ungmenna hefur versnað til muna

Eva Rós Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins Headspace segir að ungt fólk hér á landi standi frammi fyrir fjölbreyttum áskorunum í nútíma samfélagi og því sé mikilvægt að styðja við þau til að átta sig á og takast á við eigin tilfinningar, hegðun og viðbrögð. Sama sé upp á teningnum hjá nágrannaþjóðum okkar og þurfi að grípa þessi ungmenni snemma á meðan vandinn sé enn yfirstíganlegur.

„Við þökkum Krónunni kærlega fyrir að standa að þessari söfnun og þeim viðskiptavinum sem kjósa að styrkja það mikilvæga starf sem fer fram í Berginu Headspace. Rannsóknir og kannanir sýna að líðan ungmenna á Íslandi hefur versnað til muna á síðustu árum. Því til stuðnings lýsa 44% grunnskólabarna depurð og 56% lýsa kvíða í Íslensku æskulýðsrannsókninni sem fram fór árið 2024 og hefur því sjaldan verið jafn mikil þörf á úrræðum, fjármagni og sérfræðiþekkingu inn í þennan veigamikla málaflokk,“ segir Eva Rós.

Tilkomið vegna áskorunar frá Lyfju

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar segir að söfnunin hafi komið til vegna áskorunar frá Lyfju sem tóku þátt í svokallaðri „ísfötuáskorun“ sem er í gangi á TikTok þessa dagana. Henni sé ætlað að vekja athygli á andlegri heilsu.

„Að sjálfsögðu tókum við hjá Krónunni áskoruninni en okkur langaði þó að gera meira. Við hugsuðum strax til Bergsins Headspace enda hafa þau unnið ötullega að því að styðja ungmenni í átt að betri líðan. Ráðgjöf og stuðningur við ungmenni hefur sjaldan verið jafn mikilvægur og nú, og við viljum leggja okkar af mörkum. Með sameiginlegu átaki nýtum við tæknilausnir Krónunnar til að gera viðskiptavinum kleift að styðja við Bergið og vonum að sem flestir taki þátt í þessu mikilvæga verkefni sem hefst í öllum verslunum okkar á morgun og stendur yfir í tvo daga,“ segir Guðrún.

Krónan tók áskorun Lyfju og fengu nokkrir forstöðumenn fyrirtækisins gusu yfir sig á dögunum til að vekja athygli á átakinu. Krónan sendir sömu áskorun á ELKO og hægt er að sjá myndband af uppátækinu hér.

Um Bergið Headspace

Bergið Headspace hefur frá árinu 2019 veitt ungmennum á aldrinum 12 til 25 ára ókeypis ráðgjöf án tilvísunar. Um er að ræða svokallaða lágþröskuldaþjónustu þar sem stuðningur, ráðgjöf og fræðsla er veitt á forsendum unga fólksins. Ráðgjöfin nær til málefna eins og geðheilsu, náms, sjálfsmyndar og félagslegra tengsla. Í Berginu er lagt upp með að skapa notalegt og öruggt umhverfi fyrir ungt fólk sem óskar eftir aðstoð fagfólks og notenda með fjölbreytta reynslu. Hjá Berginu starfa sérfræðimenntaðir ráðgjafar sem veita ungu fólki stuðning og fræðslu og aðstoða með leiðir til að vinna úr vandamálum þeirra. Bergið er staðsett í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og á Akureyri.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.