Bergur verður Bergey á ný
Bergey Sigurdur Cr Tms
Bergur VE hefur fengið nafnið Bergey VE á ný. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Fyrir nokkru fór Bergur VE í slipp til Akureyrar. Þar var skipið málað og gert fínt, vélar teknar upp og ýmsu öðru viðhaldi sinnt. Á meðal þess sem gerðist í slippnum var að nafni skipsins var breytt. Það fékk aftur sitt upprunalega nafn Bergey og nú heyrir Bergsnafnið sögunni til. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar í dag.

Skipið var smíðað í Noregi fyrir dótturfélag Síldarvinnslunnar, Berg – Hugin í Vestmannaeyjum, árið 2019. Árið 2020 festi Síldarvinnslan kaup á Bergi ehf. í gegnum Berg-Hugin og í kjölfar þeirra kaupa eignaðist Bergur ehf. skipið árið 2022 og var þá nafni þess breytt í Bergur. Nú hafa félögin Bergur – Hugin og Bergur verið sameinuð og þótti þá eðlilegt að skipið fengi á ný sitt gamla nafn.

Jón Valgeirsson skipstjóri segir að áhöfnin sé sátt við breytinguna á nafninu. „Sumir í áhöfninni áttu erfitt með að venjast Bergsnafninu og nefndu skipið ávallt Bergey. Ég heyri ekki annað en að menn hér um borð séu mjög sáttir við þessa breytingu. Bergur fór semsagt upp í slippinn en Bergey kom niður. Við höldum til veiða á morgun frá Akureyri og ég geri ráð fyrir að við förum austur fyrir land. Nú er systurskipið Vestmannaey komið hingað til Akureyrar og mun fara hér í slippinn,” sagði Jón.

Nýjustu fréttir

Loðnan berst til Eyja
Nær sjötíu manns á þorrablóti Vinnslustöðvarinnar
Þegar jörðin talar – Og við þurfum að hlusta
Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um heimgreiðslur
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13. mars
Alexandra Ósk framlengir við ÍBV
Bifreið hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.