Tilefni þessa bréfs er að ég hef haft áhyggjur af loftræstingarkerfinu á Hraunbúðum.
Nú er ég búinn að vera að fylgjast með loftræstikerfinu síðan í febrúar. Keypti 6 rakamæla í Heimaraf til að kanna rakastigið. Fékk starfskonur til að fara með mæla inn á ýmis herbergi til að kanna rakastigið, sem reyndist því miður alltof lágt. Lágt rakastig hefur slæmar afleiðingar.
Öll þessi 4 atriði hafa því miður komið fram hjá eiginkonu minni, Emmu Pálsdóttur sem dvelur á Hraunbúðum. Það var verið að gefa henni friðarpípu 4 sinnum á sólarhring, en eftir að ég keypti rakatæki í herbergið hennar þá fær hún aðeins einu sinni á sólarhring eða jafnvel aldrei friðarpípu.
Mínar mælingar á rakastiginu sína aðeins 32% til 38%. En eðlilegt rakastig er 40% til 60%. Ég kom því til leiðar að sérfræðingur kom og gerði eittthvað við kerfið en það dugði því miður ekki nema í 3 daga. Þá fór þetta allt aftur í sama farið.
Nú krefst ég þess að að bæjaryfirvöld láti gera við þetta til frambúðar, svo vistmönnum og starfsfólki líði betur í húsinu. Starfsfólkið hefur tjáð mér að það skilji núna hvers vegna það er með þurrk í augum og þarf að drekka mikið í vinnunni, einnig hefur það sagt mér að þau telja að þetta sé búið að vera bilað í 2 til 3 ár.
Mér finnst að fólkið sem dvelur þarna eigi betra skilið en þetta ástand. Þetta er fólkið sem er búið að gera þetta bæjarfélag okkar af því sem það er. Þess má geta að eiginkonan mín er með Alzheimers sjúkdóminn. Ég er ekki að skrifa þetta til að hún læknist af þeim sjúkdómi, en ég vil að henni og öðrum vistmönnum líði betur. Það er hægt með því að laga loftræstikerfið. Það sýndi sig eftir að ég keypti rakatækið. Henni líður mun betur.
Nú fer ég fram á að bæjaryfirvöld láti laga þetta. Þetta á bara að vera í lagi.
Svar óskast hér á þessum sama vettvangi.
Virðingarfyllst.
Kristján Óskarsson.
Dags. | Dags. | Dags. | |
24/05/25 | 25/05/25 | 26/05/25 | |
Herbergi | Kl: 18:00 | Kl: 18:00 | Kl: 18:00 |
B | 0% | 32% | 39% |
C * | 45% | 45% | 40% |
D | 0% | 32% | 39% |
E | 30% | 24% | 30% |
25 | 0% | 34% | 37% |
27 | 0% | 30% | 32% |
30 | 0% | 33% | 32% |
23 | 0% | 33% | 38% |
32 | 0% | 33% | 37% |
21 | 0% | 32% | 36% |
20 | 0% | 33% | 37% |
5 | 0% | 30% | 31% |
A | 0% | 30% | 38% |
7 | 0% | 31% | 31% |
9 | 0% | 31% | 32% |
Vesturgangur | 0% | 36% | 33% |
Vaktherbergi | 0% | 37% | 32% |
Matsalur | 0% | 30% | 32% |
Býtibúr | 0% | 30% | 33% |
Meðaltal | 38% | 32% | 35% |
* Herbergi C er herbergi Emmu með rakatæki.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst