Funda með þingmönnum kjördæmisins í dag
Untitled (1000 x 667 px) (1)
Oddvitar flokkanna í Suðurkjördæmi. Mynd/samsett

Í dag funda fulltrúar Útvegsbændafélags Vestmannaeyja, Vestmannaeyjabæjar, Sjómannafélagsins Jötuns og stéttarfélagsins Drífanda með þingmönnum Suðurkjördæmis til að koma á framfæri þeim alvarlegu áhyggjum sem uppi eru vegna fyrirhugaðrar hækkunar veiðigjalda.

Að sögn Sindra Viðarssonar hjá Útvegsbændafélaginu telja fulltrúar félagana sem boða til fundarins mikilvægt að stjórnvöld geri sér grein fyrir þeim víðtæku áhrifum sem fyrirhuguð hækkun muni hafa, ekki einungis á fyrirtæki í sjávarútvegi, heldur einnig á samfélögin í heild sérstaklega í sjávarbyggðum á borð við Vestmannaeyjar.

„Við erum að vonast til að þessi fundur og það sem farið verður yfir þar fái vandaða skoðun og að tekið verði tillit til þess við endanlega ákvörðun um hækkun veiðigjalda,“ segir Sindri í samtali við Eyjafréttir.

Bíður svara frá stjórnarþingmönnum

Hann segir að forsvarsmenn þessara félaga telji nauðsynlegt að hitta kjörna fulltrúa aftur sér í lagi þar sem löggjafarvaldið hafi framan af þessari umræðu verið með ranga útreikninga til umfjöllunar.

Spurður um hvaða þingmenn hafi meldað sig til fundarins segir Sindri að það séu þingmenn Framsóknar, Miðflokks og Sjálfstæðisflokks. „Enn sem komið er hefur enginn stjórnarþingmaður staðfest mætingu en ég vænti þess að það muni koma þegar líður á daginn,“ segir hann og bætir við að fundað verði klukkan 15.00.

Nýjustu fréttir

Fleiri erlendir starfsmenn læra íslensku í Eyjum
Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja
Snjóþungur öskudagur
Engin ákvörðun verið tekin um framboð
Loðnumælingum lokið
Útboð á áætlunarflugi til Eyja
Sandra í lokahóp fyrir landsleikina gegn Svartfjallalandi
Sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.