Samfylkingin áfram stærst í Suðurkjördæmi
Oddvitar flokkanna (sem sæti eiga á þingi) í Suðurkjördæmi. Mynd/samsett

​Nýverið birtust niðurstöður úr nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og eru helstu breytingar milli mælinga að fylgi Viðreisnar minnkar um tæplega tvö prósentustig.

Fylgi annarra flokka breytist lítið eða á bilinu 0-1 prósentustig og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar. Hátt í 35% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag, tæplega 20% kysu Sjálfstæðisflokkinn, nær 13% Viðreisn, næstum 11% Miðflokkinn og ríflega 7% Flokk fólksins. Rösklega 4% kysu Framsóknarflokkinn en fylgi hans hefur ekki mælst lægra síðan mælingar Gallup hófust í júní 1992. Næstum 4% kysu Vinstri græn, rösklega 3% Pírata, nær 2% Sósíalistaflokk Íslands og um 1% aðra flokka.

Nær 6% myndu skila auðu eða ekki kjósa og tæplega 13% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp. Næstum 64% þeirra sem taka afstöðu styðja ríkisstjórnina.

Miðflokkurinn bætir við sig 4,3% milli mánaða í Suðurkjördæmi

Það er RÚV sem deilir niðurstöðunum þjóðarpúlsins með Eyjafréttum. Þar sést einnig fylgið í hverju kjördæmi fyrir sig. Í Suðurkjördæmi mælist ​Samfylkingin stærst með 27,​9%.​ og bætir við sig 2,2% milli mælinga. Næstmest fylgi í kjördæminu hefur S​jálfstæðisflokkurinn sem mælist nú með 24,​1% en var með 24,8% í síðustu mælingu. Miðflokkur nýtur stuðnings 15,8% en hann var í fyrri mælingu með 1​1,5%.

Flokkur Fólksins er fjórði stærsti flokkurinn í Suðurkjördæmi með 11,9% en var í 1​4,​1% fyrir mánuði. Viðreisn mælist með samkvæmt könnuninni ​8% fylgi í Suðurkjördæmi​ og Framsókn er með ​7,​6%. Aðrir flokkar mælast með undir 3% fylgi í kjördæminu.

Puls 0925

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.