Spennandi vorönn hjá Visku – Skrifstofuskólinn nýjasta námsleiðin 
Myndirnar eru úr starfi Visku. Eins og sjá má er starfið mjög fjölbreytt.

Viska undirbýr nú vorönnina 2026 og boðið verður upp á fjölbreytt úrval námskeiða og námsleiða fyrir íbúa. Minna Björk Ágústsdóttir, forstöðukona Visku, segir að mikil eftirvænting ríki fyrir nýju námi – Skrifstofuskólanum – sem hefjist um leið og næg þátttaka næst. Eyjafréttir ræddu við Minnu um það helsta sem fram undan er. 

Vorönn Visku 2026 er nú að taka á sig mynd og samkvæmt Minnu Björk Ágústsdóttur, forstöðukonu Visku, bíður næsta tímabil upp á fjölbreytt úrval náms og námskeiða. Skráningar eru þegar hafnar og margt spennandi í undirbúningi. 

Ný námsleið og fjölbreytt námsframboð 

„Það væri einstaklega gaman að koma nýja náminu okkar, Skrifstofuskólanum, á koppinn í vetur,“ segir Minna. „Við þurfum tíu nemendur til að hefja námið og vonumst til að íbúar sjái tækifæri í þessu – bæði til að efla færni sína og opna á frekara nám.“ 

Skrifstofuskólinn er 160 klukkustunda nám sem veitir þeim sem hyggjast starfa á skrifstofu góða undirstöðu og getur verið metið sem allt að átta framhaldsskólaeiningar. „Markmiðið er að efla sjálfstraust og starfsfærni, kenna verkfæri og verkferla sem nýtast í störfum á hinum ýmsu vinnustöðum,“ bætir hún við. 

Einnig heldur áfram vinsælt nám í íslensku fyrir útlendinga sem hefst í febrúar. „Skráning fer fram hjá Jóhönnu Lilju á netfangið jle@viskave.is,“ segir Minna. Þá bendir hún á að námið Færni á vinnumarkaði fyrir fatlað fólk hafi sannað sig í tveimur fyrri lotum. „Það hefur gefið ótrúlega góða raun og við erum gríðarlega stolt af þeim árangri.“ 

Tómstundir, námskeið og samstarfsverkefni 

Auk formlegs náms verður boðið upp á fjölbreytt tómstundanámskeið á vorönn. „Við erum þegar með nokkur námskeið opin fyrir skráningu og fleiri bætast við fljótlega. Það er alltaf líf og fjör í þessari dagskrá,“ segir Minna. Þá nefnir hún að kvennaráðstefnan MEY verði nú haldin í fjórða sinn þann 18.apríl. 

Tvö námskeið fyrir eldri borgara eru einnig á dagskrá: gervigreindarnámskeið og námskeiðið Listin að eldast vel. „Þau verða auglýst nánar á næstu dögum, en við vitum að þessi námskeið hitta vel í mark.“ 

Á vordögum verður frumsýnd ný leiksýning í samstarfi við Heimaey hæfingarmiðstöð. „Samstarfið hefur verið einstaklega gefandi og við hlökkum til að kynna afraksturinn fyrir samfélaginu.“ 

Í lokin hvetur Minna fólk til að fylgjast með heimasíðunni viskave.is eða senda fyrirspurn á viska@viskave.is. „Við tökum fagnandi á móti öllum sem vilja efla færni sína – og vonumst að sjálfsögðu til að sjá sem flesta í Skrifstofuskólanum.“ 

Nýjustu fréttir

Stefnir í spennandi prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum
Vonir vakna hjá TV á Íslandsmóti skákfélaga
Ekkert siglt í dag
Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.