Vilhjálmur í oddvitaslag í Reykjanesbæ
Vilhjálmur hefur verið þingmaður Suðurkjördæmis í 13 ár. Mynd af vef Alþingis.

„Eftir fjölda áskorana og mikla umhugsun með mínum nánustu hef ég ákveðið að gefa kost á mér til að leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ í komandi prófkjöri, sem fram fer 31. janúar,” segir Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og ritari flokksins á Fésbókarsíðu sinni.

„Fyrir tveimur árum breyttist líf okkar fjölskyldunnar skyndilega þegar við þurftum að yfirgefa heimilið okkar í Grindavík. Við Silla settumst þá að í Reykjanesbæ – enda var bærinn fyrir löngu orðinn okkar annað heimili. Silla starfar á Keflavíkurflugvelli og sjálfur hef ég starfað bæði í lögreglunni á Suðurnesjum og verið þingmaður Suðurnesjamanna í 12 ár. Þetta er samfélag sem við þekkjum og samfélag sem þekkir okkur. Á þessum erfiðu tímum tóku bæjarbúar utan um fjölskyldu mína. Það var ekki sjálfsagt, en það var mannlegt og það gleymist aldrei,“ segir Vilhjálmur og áhugavert að hann telur sig ekki þingmann annarra hluta kjördæmisins.

Ekki er Vilhjálmur sáttur við stefnu núverandi meirihluta í Reykjanesbæ en hann hefur fulla trú á að hægt sé snúa dæminu við. „Reykjanesbær er ljósabær og ég trúi því af öllu hjarta að hér sé hægt að byggja upp samfélag þar sem allir fá að láta ljós sitt skína. Megináhersla næstu bæjarstjórnar verður að vera sú að tryggja að Reykjanesbær verði besti staður landsins fyrir fjölskyldur og fyrirtæki.

Við þurfum ábyrgari rekstur sveitarfélagsins til að geta lækkað skatta á heimilin. Við þurfum skýra framtíðarsýn í skipulagsmálum sem virðir drauma fólks um eigið heimili og fjölbreytt búsetuform. Og við þurfum að setja börnin raunverulega í fyrsta sæti – með aðgengi að leikskólum, sterkum íþróttafélögum og bestu grunnskólum landsins.

Reykjanesbær er stórveldi og ég óska eftir stuðningi ykkar í prófkjörinu svo við getum saman tryggt að allir fái að láta ljós sitt skína. Nú brettum við upp ermar og hefjumst handa,“ segir Vilhjálmur sem ekki er einn um hituna.

Áður höfðu Ásgeir Elvar Garðarsson, framkvæmdastjóri Bílaleigunnar Geysis og Unnar Stefán Sigurðsson, skólastjóri Háaleitisskóli á Ásbrú, tilkynnt um framboð.

 

 

Nýjustu fréttir

Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.