Gul viðvörun: Norðaustan hríð
Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs á Suðurlandi og á Suðausturlandi. Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi á miðnætti og gildir hún til klukkan 15:00 á morgun. Í viðvörunartexta segir: Gengur í norðaustan 10-18 m/s með snjókomu og slæmu skyggni. Versnandi akstursskilyrði.

Í hugleiðingum veðurfræðings frá í morgun segir að í dag sé spáð fremur hægri norðanátt og dálitlum éljum norðanlands. Hægt vaxandi austan- og norðaustanátt og þykknar upp vestanlands, 13-20 og snjókoma sunnanlands undir kvöld. Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi í nótt og framan af morgundegi.

Bætir í vind norðanlands síðdegis á morgun með samfelldri snjókomu. Frostlaust allra syðst en annars frost 0 til 8 stig. Enn er nokkur óvissa um staðsetningu úrkomubakkana og er fólk hvatt til að fylgast vel með spám.

Nánar um veðrið.

Nýjustu fréttir

Eyjagöng fá alþjóðlegan sérfræðing í neðansjávargangagerð til liðs við sig
Umræða skapast um starfsumhverfi hjá Vestmannaeyjabæ
Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Landa fyrir austan
Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.