Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Dýpkunarskipið sem verður notað heitir Sebastiano Cabato. Það er byggt 2011, er 93 m að lengd og 19,8 m að breidd.

Vegagerðin hefur samið við belgíska dýpkunarfyrirtækið Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar árin 2026 til 2029. Jan De Nul sérhæfir sig meðal annars í dýpkunarframkvæmdum og er meðal stærstu fyrirtækja heims á sínu sviði, með starfsemi víða um heim.

Fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni að verkefnið hafi verið boðið út í lok desember og voru tilboð opnuð 10. febrúar 2026. Fjögur tilboð bárust í verkið og réðst niðurstaða útboðsins af samræmdu mati á verði og tæknilegum þáttum.

Útboðið felur í sér reglubundna dýpkun á hafnarsvæðinu og í nágrenni þess, með það að markmiði að tryggja nægjanlegt dýpi og öruggar siglingaaðstæður til og frá höfninni. Verkið er skipulagt í þremur tímabilum ár hvert, frá september til apríl, og er áætlað að árlegt dýpkunarmagn verði á bilinu 250.000 til 500.000 rúmmetrar.

Jan De Nul hefur reynslu af aðstæðum við Landeyjahöfn, en fyrirtækið vann að dýpkun hafnarinnar árin 2015 til 2018. Dýpkunarskipið sem notað verður við verkið heitir Sebastiano Caboto. Það var byggt árið 2011, er 93 metrar að lengd og 19,8 metrar á breidd. Nánari upplýsingar um skipið má nálgast hér.

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, segir niðurstöðuna ánægjulega: „Við fögnum samstarfi við öflugan alþjóðlegan verktaka sem býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu á þessu sviði. Fyrirtækið hefur jafnframt áður komið að dýpkun í Landeyjahöfn, sem skiptir máli fyrir verkefnið. Áhugi þeirra á verkefninu er augljós og væntingar okkar til samstarfsins því mjög jákvæðar.“

Nýjustu fréttir

Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.