Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Var tvisvar með 13 rétta um helgina
1x2_fagn-4.png
Tipparinn hafði ástæðu til að fagna, þegar úrslit lágu fyrir.

Sá fáheyrði atburður átti sér stað hjá Íslenskum getraunum um síðustu helgi að sami tippari var með 13 rétta bæði á Enska getraunaseðlinum sem spilaður er á laugardögum og á Evrópuseðlinum sem spilaður er á sunnudögum. Þetta segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá og það tekið fram að þetta sé ekki aprílgabb.

Tipparinn,  sem er tæplega níræður Vestmannaeyingur, fékk rúmar 800 þúsund krónur í sinn hlut í vinninga. Hann notaði kerfismiða í báðum tilfellum og kostaði Enski seðillinn 8.424 krónur og Evrópuseðillinn 4.212 krónur. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi tippari fær 13 rétta en hann hefur reynst ansi glúrinn í gegnum tíðina.  Tipparinn styður við bakið á Knattspyrnufélaginu Smástund, (KFS)  í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.