Leik ÍBV og FH í fyrstu umferð Bestu deildar karla, sem fer fram sunnudaginnn 12. apríl á Hásteinsvelli, hefur verið flýtt.
Leikurinn átti að fara fram kl. 17:00, eins og þrír aðrir leikir, en hefur verið flýtt til kl. 13:00 samdægurs. Umferðin hefst föstudaginn 10. apríl með leik Íslandsmeistara Víkings Reykjavík og Breiðabliks og lýkur á sunnudagskvöldið, með leik Fram og ÍA, sem hefst kl. 19:30.
Fram kemur á vef KSÍ að ástæðan sé vegna lokunar í Landeyjarhöfn.
Fyrsta umferðin í Bestu deild karla
Föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)
Sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)