Prúðmannleg pólitík
Arndís María Kjartansdóttir.

Aðsend grein

Arndís María Kjartansdóttir

Fersk sýn

Þarf allt að vera neikvætt, illa gert, leiðinlegt og ömurlegt til að teljast fréttnæmt.  Þarf fókusinn að vera á hið neikvæða til að teljast til vinsælda. Erum við komin þangað, ein hamingjusamasta þjóð í heimi?  Eða er málið að einblína á það sem jákvætt er, það sem vel hefur verið gert og byggja ofan á það.  Að sjá styrkleikana í nýju fólki með ferska sýn og fagna þeim tækifærum sem þau færa að borðinu. Er það ekki mun vænlegra til árangurs og meiri velsældar okkur öllum til handa?

 

Heppni og hugrekki

Stundum leiðir lífið mann á ókunnar slóðir, slóðir sem jafnvel geta reynst erfiðar og ógnvekjandi, en jafnframt spennandi og fullar af áskorunum.  Það eru allir einhvern tímann að feta slóðina í fyrsta skipti, í hvaða starfi sem er. Það þarf hugrekki að breyta til og eitthvað af heppni í bland til að vel fari. Seigla nefnilega lærist, hún er ekki bara meðfædd. Er ekki málið að vera óhrædd, þakka innilega fyrir traustið sem mér hefur verið sýnt af Eyjalistanum, stjórn hans og flokkmönnum og stökkva í djúpu laugina. Ég er nefnilega ágætlega synd skal ég ykkur segja.

 

Reynslan er víðtæk

Nú erum við fjölmörg sem erum að stíga okkar fyrstu skref í bæjarpólitíkinni í þeim flokkum sem bjóða fram í næstu bæjarstjórnarkosningum. Margir vöruðu mig við, aðrir hvöttu mig en allir hafa verið jákvæðir, því hvað getur mögulega verið ómögulegt við að fá nýtt fólk til starfa, fólk með nýjar ferskar hugmyndir,  fólk með mikla reynslu á mismunandi sviðum, fólk sem er tilbúið að vinna fyrir bæjarfélagið sitt af heilindum og hefur áhuga á að hlusta og þjóna bæjarbúum sem allra best.

 

Málefnin eru mörg

Án efa brenna stóru málin á öllum frambjóðendum. Samgöngumálin skipta alla máli, það vitum við. Menntamálin eru og verða mér ávallt hugleikin, öldrunarmál skipta mig persónulega miklu máli, umhverfis- og skipulagsmál eru sérstakt áhugamál hjá mér og ferðamálin skipta sífellt meira máli. En svo eru önnur mál eins og móttaka nýrra íbúa, starfsendurhæfingarstöð, framtíðarsýn bókasafnsins og íþróttamannvirkjanna, bygging nýs leikskóla, nýtt húsnæði fyrir félagsaðstöðuna, að merkja betur gönguleiðir, svo yfir í minni málin eins og ljósastauralýsinguna, snjómokstur á gangstéttum og svo mætti lengi telja.  Málið er að láta öll málefni sig varða og vinna að þeim stóru sem þeim smáu af sömu heilindum og láta sig velferð allra máli skipta.

 

Samvinna skiptir sköpum

Framundan er drengileg og spennandi kosningabarátta af okkar hálfu, þar sem við viljum fara fram með jákvæðni að leiðarljósi. Við viljum fara í málefnin en ekki mennina, við viljum öll vel og áttum okkur á að sterk liðsheild að loknum kosningum er það sem þarf til að reka gott velferðar samfélag í eyjum.

 

Arndís María Kjartansdóttir,  oddviti og bæjarstjóraefni Eyjalistans.

Nýjustu fréttir

Erfitt tíðarfar undanfarið en góður afli hjá Kap VE
Prúðmannleg pólitík
Páskar í Landakirkju
Bræður frá Úkraínu fundu ró í Vestmannaeyjum 
Óskar og Sigurjón margfaldir aflakóngar
Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.