Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs
default
Vestmannaeyjahöfn. Seiðaeldisstöðin í forgrunni sem er stærsta hús sem risið hefur í Vestmannaeyjum.

Mikil uppbygging hefur verið í fiskeldi hér á landi á undanförnum árum og framleiðsla og verðmætasköpun aukist hratt. Með því hefur fiskeldi orðið sífellt mikilvægari stoð undir gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins og stuðlað að aukinni fjölbreytni í útflutningi. Ekkert lát virðist á þessari þróun samkvæmt nýlegum tölum frá Hagstofunni. Þetta kemur fram í Radarnum – fréttabréfi SFS.

Þar segir jafnframt að útflutningsverðmæti eldisafurða hafi numið um 6,6 milljörðum króna í mars, sem er rífleg tvöföldun miðað við sama mánuð í fyrra. Samtals er útflutningsverðmæti eldisafurða þar með komið í rúma 22 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi, sem er hæsta verðmæti sem náðst hefur á einum ársfjórðungi frá upphafi. Í samanburði við fyrsta ársfjórðung í fyrra nemur aukningin 25% í krónum talið. Að teknu tilliti til gengisbreytinga mælist aukningin ríflega 28%, en gengi krónunnar var að jafnaði rúmlega 2% sterkara en á sama tíma í fyrra.

Vægi eldisafurða í verðmæti alls vöruútflutnings nam rúmlega 9% á fyrsta ársfjórðungi, sem jafnframt er met. Þetta má sjá í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruviðskipti í mars, sem birtar voru í síðustu viku. Þar eru verðmætin ekki sundurgreind eftir fisktegundum, en þær tölur verða birtar í lok mánaðarins.

 

Fjárfesting knýr vöxtinn

Að baki uppbyggingunni sem orðið hefur í fiskeldi á undanförnum árum er mikil fjárfesting af hálfu fyrirtækjanna. Fiskeldi er fjármagnsfrek atvinnugrein, sér í lagi á fyrstu stigum uppbyggingar, og endurspeglast það skýrt í aukinni fjármunamyndun í greininni á undanförnum árum. Fjármunamyndun hefur aukist hratt og verið stigvaxandi frá ári til árs. Það bendir til þess að fyrirtæki í greininni, bæði í sjókvía- og landeldi, sjái áframhaldandi tækifæri til vaxtar á komandi árum. Það er afar jákvætt því varanlegur útflutningsvöxtur er grundvöllur sjálfbærs hagvaxtar og bættra lífskjara.

Nýjustu fréttir

Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina
Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs
„Gengið eins og í sögu”
Spurt og svarað: Jóhann Ingi frá Miðflokknum
Undanúrslitin hefjast – ÍBV mætir Haukum í fyrsta leik
Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.