Óvissa um samgöngur til Vestmannaeyja hefur verið „alger og óþolandi“ undanfarna mánuði, að sögn Karls Gauta Hjaltasonar sem ræddi málið undir liðnum Störf þingsins á Alþingi í dag.
Hann benti á að farþegaferjan Herjólfur hafi lengst af þurft að sigla til Þorlákshafnar þar sem dýpi í Landeyjahöfn sé ekki nægilegt.
Í ræðu sinni rakti Karl Gauti alvarlega stöðu hafnarinnar. Ekki hefur verið siglt heilan áætlunardag til Landeyjahafnar síðan 16. janúar og engin ferð var farin þangað á tímabilinu 20. febrúar til 4. apríl.
Frá áramótum hafa einungis átta heilir dagar náðst þar sem siglt var samkvæmt áætlun til hafnarinnar.
Sagði hann þennan vetur einn þann versta í samgöngumálum Eyja um langt árabil og benti á að ekki þyrfti að líta lengra en tvo áratugi aftur í tímann til að finna betri stöðu, meðal annars vegna öflugri flugsamgangna á þeim tíma.
Karl Gauti lagði fram þrjár megintillögur til úrbóta: Að ljúka framkvæmdum og endurbótum á Landeyjahöfn til að draga úr sandburði. Að efla búnað og skip til sanddælingar sem ráða við erfiðari aðstæður og að stórefla flugsamgöngur til Vestmannaeyja yfir vetrartímann
Hann lagði sérstaka áherslu á að tryggja íbúum möguleika á samdægursferðum, meðal annars fyrir þá sem þurfa að sækja læknisþjónustu til Reykjavíkur.
Þá kom einnig fram að staðan gæti versnað enn frekar á næstu dögum. Herjólfur siglir nú á annarri skrúfunni og þarf að fara í viðgerð sem gæti tekið um viku.
Sagði Karl Gauti ljóst að staðan í samgöngum við Eyjar væri ekki ásættanleg og kallaði eftir skýrum aðgerðum stjórnvalda án tafar.