Dýptarmæling í dag
Baldur í Landeyjahöfn. Mynd/Óskar Pétur.

Dýpi í Landeyjahöfn verður mælt síðdegis í dag og mun niðurstaðan ráða miklu um framhaldið, bæði hvað varðar dýpkun og siglingar. Þetta kemur fram í nýjum upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar.

„Miðað við ölduspá má reikna með að hægt verði að hefja dýpkun að nýju síðdegis á morgun,“ segir Pétur. Óvissa er þó enn um siglingar þar sem þær ráðast af niðurstöðum mælingarinnar.

„Varðandi mögulegar siglingar í Landeyjahöfn á flóði ræðst það af dýpinu sem kemur ekki í ljós fyrr en eftir mælinguna,“ segir hann.

Á sama tíma er Breiðafjarðarferjan Baldur á leið til Vestmannaeyja og er stefnt að því að hefja siglingar á morgun. „Bæði Herjólfur og Baldur munu þá sigla milli lands og Eyja,“ segir Pétur. Nánari upplýsingar um siglingaáætlun verða gefnar út af Herjólfi ohf. um leið og þær liggja fyrir.

Horfur varðandi áframhald dýpkunar eru þó taldar góðar. „Útlitið lítur vel út og ölduspá næstu daga er góð,“ segir Pétur.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.