Síðasta Aglow samvera vetrarins
JESÚS SEGIR. KOMIÐ TIL MÍN – ÉG MUN VEITA YÐUR HVÍLD

Síðasta Aglow samvera vetrarins verður miðvikudaginn 6. maí og verður hún með öðru sniði en venjulega. Við ætlum að koma saman í Landakirkju kl. 17.00 og fara yfir efni frá aðþjóðlegurm bænadegi kvenna sem var skrifuð af samkirkjulegum hópi kristinna nígerískara kvenna út frá orðum Jesú; Komið til mín og ég mun veita yður hvíld.( Matt. 11 28-30)  Konurnar frá Nígeríu segja við okkur;; Markmið okkar er að hvetja aðrar konur í heiminum til að koma saman í einingu og biðja sem ein fjölskylda. Þegar við treystum Guði, sem ber byrðar okkar, verðum vð einn líkami í Kristi, þiggjum hvíld og færum heiminum hana áfram.”   

Myndin hér að ofan er frá Nígeríu. Við lesum saman yfir efni bænadagsins og Kittý mun spila undir söng og konur í kirkjukór Landakirkju munu leiða sönginn. Þær eru búnar að æfa söng sem kemur frá konunum í Nígeríu. Eftir stundina munum við fara í bænagöngu, ganga frá Landakirkju og nema staðar  á nokkrum stöðum og biðja fyrir ýmsum málefnum bæjarins. Við endum síðan niður á veitingastaðnum Tanganum og borðum saman.                                 

Stjórn Aglow þakkar fyrir góðar stundir í vetur og hefur verið gaman að koma saman og fjalla um ýmis uppbyggileg málefni. Við biðjum þess að við eigum allar góðar stundir í sumar.

Fyrsti fundur í haust verður miðvikudaginn 2. september, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Nýjustu fréttir

Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.