Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði gegn Val, 23-25, í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Olís deild kvenna, í Eyjum í kvöld. Valskonur er því komnar í 2-0 í einvíginu og eru einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum.
Valskonur byrjuðu leikinn betur og náðu fjögurra marka forystu, 2-6, á upphafs mínútum fyrri hálfleiks. Valskonur voru með yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn og fóru með tveggja marka forskot inn í hálfleik. Staðan 13-15.
Eyjakonur voru að elta allan leikinn og komust Valskonur fimm mörkum yfir, 14-19, í upphafi síðari hálfleiks. Þegar stundarfjórðungur var eftir var staðan 18-24 en þá steig Ólöf Maren Bjarnadóttir, markavörður ÍBV, heldur betur upp og lokaði markinu. Eyjakonur náðu að minnka muninn niður í tvö mörk, 22-24, á lokakafla leiksins og fengu tækifæri til að minnka í eitt en Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals, varði frá Ástu Björt Júlíusdóttur, þegar tæp mínútu var til leiksloka. Valskonur unnu að lokum nokkuð öruggan tveggja marka sigur. Lokatölur leiksins 23-25.
Birna Berg Haraldsdóttir, leikmaður ÍBV, var markahæst í leiknum ásamt Ásthildi Jónu Þórhallsdóttur, leikmanni Vals, með sjö mörk hvor. Ólöf Maren Bjarnadóttir átti mjög góðan leik í markinu hjá Eyjakonum og varði hún 15 skot.
Mörk ÍBV: Birna Berg Haraldsdóttir 7 mörk, Sandra Erlingsdóttir 5, Britney Emilie Florianna Cots 3, Agnes Lilja Styrmisdóttir 3, Birna María Unnarsdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 2, Ásta Björt Júlíusdóttir 1, Ásdís Halla Hjarðar 1.
Næsti leikur í úrslitaeinvíginu fer fram á Hlíðarenda, laugardaginn 9. maí kl. 17:00. ÍBV stelpurnar þurfa nauðsynlega á sigri að halda ætli þær að eiga möguleika á Íslandsmeistaratitlinum.