Herjólfur siglir til Landeyjahafnar síðdegis
20200912_herj_ystiklett_sjor_min
Myndin er tekin um borð í Herjólfi. Eyjar.net/Tryggvi Már

Herjólfur ohf. hefur gefið út nýja tilkynningu þar sem fram kemur að siglt verði tvær ferðir til Landeyjahafnar í dag. Annars vegar seinni partinn í dag og hins vegar í kvöld.

Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan 16:00 og 19:30, en ferðin klukkan 16:00 hafði áður verið áætluð til Þorlákshafnar. Frá Landeyjahöfn verður siglt klukkan 18:15 og 20:45.

Þetta þýðir að aðstæður hafa batnað það mikið að hægt verður að sigla þessar síðdegisferðir um Landeyjahöfn í stað Þorlákshafnar. Áður hafði verið gefið út að ferjan sigli sjö ferðir milli Eyja og Landeyjahafnar á morgun, mánudag.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.